7.október 2009 undir lið 4 lagði Umhverfisnefnd Ísafjarðabæjar fram bréf frá Halldóru Þórðardóttur og Sævari Óla Hjörvarssyni,þar sem þau óska eftir áliti umhverfisnefndar á stofnun lóðar í landi Atlastaða samkvæmt nýjum skipulagsuppdrætti af Geirmundarstöðum, unnum af Landmótun. Umhverfisnefnd benti á að bréfritarar væru nú þegar byggingarleyfi í landi Geirmunrstaða/Skjaldabreiðu samkvæmt deiliskipulagi, samþykkt í bæjarstjórn 20. nóvember 2008. Samkvæmt drögum að Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar fyrir 2008 – 2020, viðauka A, má hámarksfjöldi húsa vera átta og hefur nú þeim fjölda verið náð. Breyta þarf því fyrrgreindu deiliskipulagi til að hægt verði að veita byggingarleyfi á nýjum stað