Vorið 2008 gaf Háskóli Íslands út BS-ritgerð Rannveigar Guðmundsdóttur, sem bar heitið “Viðhorf landeigenda á Hornstrandasvæðinu til nýtingar svæðisins fyrir ferðamennsku “ . Þarna kemur margt fram, og ég bendi ykkur á að lesa þetta. En, ég leyfi mér að afrita neðanritaðan texta :
” Í daglegri umræðu eru mörk Hornstranda mjög á reiki og er gjarnan talað um Hornstrandafriðland og sunnanverða Jökulfirði sem eitt svæði undir nafninu Hornstrandir (fyrrum Sléttu- og Grunnavíkurhrepp). Samkvæmt Þórleifi Bjarnasyni (1983) eru Hornstrandir hins vegar það svæði sem nær frá Kögri í Fljótavík og austur að Geirólfsgnúpi. Núlifandi Hornstrendingar hafa haldið þessari skilgreiningu við en víðari skilgreining er gjarnan notuð í leiðsagnabókum (Páll Ásgeir Ásgeirsson, 2007) og meðal almennings…… (sleppt úr) …. Hornstrandasvæði er samheiti sem notað er af Ísafjarðabæ, umsjónaraðila svæðisins, yfir fyrrum Sléttu- Grunnavíkur- og Snæfjallahrepp. “
Hornstranda friðland, Hornstrandir, Hornstrandasvæði……: Svo mörg voru þau orð