Stafænar myndir eru samansafn af tölum og bókstöfum. Ef slíkar myndir eru skoðaðar á til þess ætluðum stað, má ná fram upplýsingum um hvenær þær voru teknar og á hvaða myndavél. Nýrri myndavélar eru til og með fáanlegar með staðsetningarkerfi sem segir nákvæmlega hvar í veröldinni ljósmyndarinn stóð þegar hann tók myndina.
Þetta var ekki svona hér áður fyrr – og reyndar eru þessar upplýsingar ekki alltaf finnanlegar í nýjum myndum sem sýndar eru á vefnum, en þessar upplýsingar verða mikilvægar þegar tíminn líður.
Á það hefur verið bent, að upplýsingar skortir – sárlega – um myndir sem þessi síða flokkar sem teknar fyrir byggingu fyrsta sumarbústaðarins í Fljótavík. Því skal gerð tilraun til að reyna ná fram svona upplýsingum – og fyrst um sinn einblítt á fyrstu þrjár myndir þessa myndasafns. Ef þið veljið “slides” form sýningarvélarinnar og táknið “ i ” niðrið í vinstra horninu, sjáið þið að myndirnar eru númeraðar 1969-1, 1969-2 og 1969-3. Ef þið veljið fjórða táknið frá vinstri, opnast “comment” gluggi – og þar getið þið skrifað inn allar þær upplýsingar sem þið hafið um myndirnar – og reyndar allar aðrar myndir – en fyrst um sinn einblinum við sem sagt á þessar þrjár. Hver tók þessar myndir og hvaða ár?
Ef þið viljið ekki skilja eftir ykkur spor, getið þið líka skrifa mér tölvupóst og ég vinn þá úr því sem ég fæ. Póstfangnið er:
asgeirsson54@gmail.com
Ásgeir