Kristján G Jóhannsson, sonarsonur Júlíusar Geirmundssonar og Guðrúnar Jónsdóttur sem bjuggu um 40 ára skeið á Atlastöðum í Fljóti, gaf nýlega út bækling um þau fjögur skip sem borið hafa nafn afa hans.
Bæklinginn gefur Kristján út í tilefni þess að 2. mars 2017 voru rétt 50 ár liðin frá því að fyrsta skipið sem bar nafnið “Júlíus Geirmundsson” kom til Ísafjarðar. Um þetta er einnig fjallað í frétt á féttavef Bæjarins Besta á Ísafirði, og fer vel á því að fyrir fréttinni er skrifaður annar afkomandi Júlíusar og Guðrúnar.
Öll þessi fjögur skip hafa verið smíðuð sem nýsmíði fyrir útgerðina Gunnvöru.
Nafn fyrirtækisins er dregið af samnefndum báti sem strandaði í Fljótavík árið 1949. Kristján hefur einnig skrifað þá sögu hér á síðunni.
Búið er að tengja þennan nýja bækling neðst inn í þá síðu þar sem æviferill Júlíusar og Guðrúnar er reifaður hér á síðunni.