Eins og gengur, koma upp kringumstæður sem leiða til þess að maður getur ekki haldið einhverju til streitu. Ég var ég kominn með smá hefð fyrir að láta vita á föstudögum, um hvað ég hefði verið að bralla á heimasíðunni síðustu vikuna – en undanfarið hefur þetta riðlast.
Ég hef verið á flakki – erlendis og innanlands. Þannig náðum við á ball hjá BG í Edinborg á Ísafirði – og það var sko gaman – og sá viðburður tengist nú heldur betur Fljótavík – og við dvöldum nokkra daga á Ísafirði – af annarri ástæðu – og ég gæti tínt til fleiri afsakanir en látum það liggja á milli hluta.
En – ég hitti mann og annan – og ég heyrði að fólk saknar þess ef ekkert kemur. Ég sé líka á teljurum og línuritum að það er vaxandi fjöldi að fara inn á síðuna. Ég fæ þó lítil skrifleg viðbröðg eða ábendingar um hvæð ég ætti að gera….. eða gera betur. Ég sakna þess – og get ekki skrifað um það sem mér dettur ekki í hug – svo ég hvet enn og aftur til þess að þið sendið mér nú eitthvað til að mauðla úr.
Ég hef svo sem verið að bralla ýmislegt á síðunni – því það stendur yfir vinna við gerð upplýsinga um margt sem tengist Atlatungu – nokkuð sem kallast Gæðahandbók. Það kostar vinnu og heilabrot – og svo veit maður að margt af því sem er fullafgreitt í dag….. breytist á morgun – og þá þarf að breyta lýsingum upp á nýtt – en það er nú bara smotterí. En – þó svona lýsing sé á heimasíðunni – þarf aðgangsorð til að komast þar inn – en það er hægt að gera svona fyrir aðra bústaði líka……. og þá með öðrum aðgangsorðum. Ég var búinn að fara yfir þetta áður.
Það sem helst er nýtt á síðunni nú er að ég var að yfirfæra söguna um “Sviplegt fráfall tófu” frá gömlu síðunni.
Ásgeir