Eins og margir vita, er samvinna milli heimasíðunnar www.fljotavik.is og síðu á Facebook, Fljotavik á FB. Þegar ég finn eitthvað spennandi í umræðu t.d. tengt Hornströndum, vísa ég oft í slíkt á Facebooksíðunni. Þessar fréttir fara ekki inn á heimasíðuna.
Öfugt, þegar heimasíðan sendir eitthvað frá sér á bloggformi, sendir hún sjálfkrafa tilkynningu sem kemur fram á Facebooksíðunni hjá þeim sem hafa sett “Like” á Facebooksíðuna.
Hvers vegna er hann að skrifa þetta?
Ég setti hlekk frá heimasíðunni á Faceboosíðu Átthagafélags Sléttuhrepps, þar sem vísa var í myndasíðu Ásmundar Guðnasonar frá flugi yfir Sléttuhrepp en þó aðallega Fljót. Eftir það hringdi einn sem sárnaði að fá ekki skilaboð á Facebooksíðu sína þegar ég birti eitthvað á heimasíðunni. Viðkomandi vissi um aðra sem voru að fá skilaboð.
Við fórum saman yfir þetta og komumst að því að viðkomandi hafði sett “Like” á “Facebooksíðu Átthagafélags Sléttuhrepps” .
Viðkomandi var ekki með Like, á Fljotavik.is á FB en kom því í lag hjá sér og fær nú skilaboð frá síðunni, en telur eins ástatt hjá mörgum öðrum.
Sem sagt – eins og stendur á forsíðu Fljotavik á FB….: hakið við Like eða upp á íslensku “Kann að meta“, eins og sést á myndinni sem fylgir, ef þið viljið frá skilaboð þegar nýtt efni er birt á www.fljotavik.is eða eitthvað er birt á Fljotavik.is á FB.
Ef ykkur grunar að eins sé ástatt hjá einhverjum sem þið þekkið – bendið á viðkomandi á það.
Ásgeir