Fyrir viku birti ég stuttan póst þar sem ég sagðist vera nýkominn úr örstuttri ferð í og úr Fljóti. Ég lofaði myndum – og þær eru 160 talsins, teknar á 3 síma og Canon myndavél. Sumar myndirnar eru næstum eins, enda stóð fólk í nánast sömu sporum að taka myndir af sömu hlutum. Ég læt þetta vera þannig. Í einhverjum tilfellum hef ég skrifað texta til hægri við myndirnar – og mæli eindregið með að þið gerið athugasemdir líka.
Sjón er sögu ríkari………