Ritstjóri átti þess kost að skjótast í tveggja nátta / þriggja daga ferð í Fljót í vikunni sem er að líða.
Áður hefur komið fram að snjó hefur tekið upp á láglendi. En það kom okkur á óvart hversu langt gróður eins og gras, hvönn, blágresi, og bara blóm yfir höfuð eru komin í þroska sínum. Blágresisbrekkur skörtuðu næstum því sínu fegursta – það vantaði í það minnsta ekki mikið upp á það.
Þá er jarðvegur óvenju þurr, og má ekki hreyfa mikið við honum án þess að það rykist.
En, ég er kominn með fullt af myndum – sem reyndar eiga ekki allar erindi á þessar síður – en margar munu birtast hér fljótlega.
Á myndinni hér í þessum pósti, má greina skriðu sem fallið hefur úr Bæjarfjalli fyrir innan eða eins og málvenja er að segja – framan við Atlatungu. Skriðan fór af stað uppi í fjallinu, og náði að renna niður á og út fyrir Hjallann, og alveg niður undir jafnsléttu.
Betri myndir af þessari skriðu og öðrum sjáanlegum afleiðingum af mikilli úrkomu seint á síðasta sumri, má sjá á væntanlegum myndum.
Læt þetta duga í bili.
Gleðilega þjóðhátíð.
Ásgeir
Altaf góður. Vona að gömlu hjónin hafi verið hress