Varla voru haldin Þorrablót í Fljóti?
Þorri byrjar í dag, föstudaginn 20. janúar 2017, á Bóndadegi. Það vekur mann til umhugsunar um hvort haldið hafi verið upp á slíkt fyrirbæri í Fljóti svona síðustu árin áður en byggðin fór í eyði. Er einhver sem veit?
En – í tilefni Þorra, ætla ég að leyfa mér að að benda á bráðskemmtileg skrif Vernharðs Guðnasonar um dvöl hans og Herborgar Vernharðsdóttur í Fljóti á Þorra árið 2003. Söguna skráði Vernharð í gestabók Atlatungu á meðan á dvölinni stóð.
Hvað var ekki skráð? Siglingin til Ísafjarðar?
Einhver skráði í athugasemd að það vanti lokahnykkinn á ferðasöguna, þar sem ekki hafi verið skráð neitt um heimferðina sem mun í einhverju hafa verið söguleg?
Hvað segir þú Venni: Viltu bæta einhverju við?
Ásgeir
(Slóð : Sögur og óflokkað > Dvöl í Fljótavík á Þorra árið 2003 )