Það hlaut að koma að því. Nú sæki ég bloggið frá því fyrir jól í fyrra og set, með breytingum inn aftur :
Þeim fer fækkandi sem hafa lifað jól í Fljótavík. Fyrir okkur sem ekki vitum – væri fróðlegt að fá eitthvað að heyra og/eða lesa um jólaundirbúning og sjálft jólahaldið í Fljótavík, og þá væri nærtækast að horfa á jólin 1945. Continue reading “19.des. 2014”
Það er einkenni stjórnmálamanna, að setja sér fastar skorður – stefnumarkmið. Eftir að stefnan er ákveðin skal sko ekkert breyta henni – hvað sem tautar eða raular. Einn góðan veðurdag sjá þeir þó sumir, að stefnan er bara ekki að ganga upp – og þá taka þeir nýja stefnu og ferlið byrjar upp á nýtt.
Mér líður svolítið þannig núna! Ég er nýbúinn að marka þá stefnu að loka flestum kommentagluggum. Ég er búinn að loka öllu frá árinu 2013 og er að fikra mig áfram þann veg og held mig við markaða stefnu þar.
Með aukinni reynslu í heimasíðugerð, horfi ég öðru vísi á hvað aðrir eru að gera. Með aðrir – meina ég hinn stóra heim í heild sinni. Fjölmiðlar nota oft fyrirsagnir í þeim tilgangi að laða fólk að, hvort sem það er að lestri blaðagreina eða að ljósvakamiðlum. Við könnumst öll við stóru fyrirsagnirnar í DV. Þetta trix er líka notað við bloggskriftir. Því stærri sem fyrirsagnirnaer eru – því líklegra er að fá athygli, að ég nú tali ekki um að því líklegra erContinue reading “5.des. 2014”
Það tók sinn tíma, en nú er ég að ná tökum á því að bæta myndum á síðuna. Það fylgir því þó handavinna, og ýmislegt sem þarf að gera annað en að henda myndum inn. Meðal þess sem þyrfti helst að gera er að setja upplýsingar sem allir geta lesið, inn á myndirnar. Ekki síður þarf að skrá helstu stikkorð, “á bak við myndrnar”, fyrir sérstök forrit sem lesa þar – og fyrir fólk sem á einhvern hátt á í erfiðleikum með að lesa – og þá líka fyrir það sem les allra mest í veröldinni, Continue reading “28.nóv. 2014 : Myndir? Hvaða myndir?”
(Uppfært 4.des. 2014 : *Nýtt* merking fjarlægð af tímalínunni)
Öðru hvoru tek ég mig til og bæti inn á Tímalínuna. Ég hef gert nokkrar tilraunir með að benda ykkur á hvað er nýtt – og hef enn ekki fundið “bestu leiðina”. Nú ætla ég að gera tilraun þar sem ég hef sett *Nýtt*fremst þar sem er eitthvað nýtt. Skoðið þetta – og athugið að þetta er mikið í kring um ártalið 1980 og til ársins 1949 .
Mynd tekin í lok ágúst 2014. Bárubær
Ég hef áður beðið um upplýsingar – og nú geri ég það aftur – um hvað sagan ætti að geyma um framkvæmdir sumarsins í Fljótavík. Samtals hef ég fengið ein skilaboð um það, og það er frá Brekku.